Alþingi

Kirkjustræti 12, 101 Reykjavík

About

Alþingishúsið við Austurvöll var hannað af danska húsameistaranum Ferdinard Meldahl 1879 og kom Alþingi þar fyrst saman í júlí 1881. Húsið er í endurreisnarstíl með bogadregnum gluggum og valmaþaki, en veggirnir eru tvöfaldir og hlaðnir úr tilhöggnu grágrýti. Fyrir ofan glugga á annarri hæð eru landvættirnar fjórar en annars er byggingin lítið skreytt. Allt efni í húsið fyrir utan steininn var innflutt frá Evrópu og iðnaðarmennirnir voru danskir. Íslenskir steinsmiðir lærðu svo vinnubrögðin af Dönunum og í kjölfarið fjölgaði steinhúsum í borginni. Í húsinu voru ýmsar nýjungar m.a. ein fyrstu salerni landsins.

Upcoming events

  • Orgelsumar í Hallgrímskirkju / Orgelmaraþon í Hallgrímskirkju á Menningarnótt
    Orgelsumar í Hallgrímskirkju / Orgelmaraþon í Hallgrímskirkju á Menningarnótt
    Sat 22.08.2026 14:00
    View event
  • Model NATO-ráðstefna
    Model NATO-ráðstefna
    Fri 02.10.2026 09:00
    View event