Unnur Malin
folk
About
Unnur Malín er fjölhæf listakona með áheyrilega og hlýja rödd. Barnafötunum sleit hún í bæði djass og klassískt gerjuðum jarðvegi, en unglings-sárin græddi hún með poppi, rokki, reggíi, sálartónlist og r'n'b. Hljóðheimur uppvaxtaráranna hefur verið henni innblástur í eigin tónsköpun sem einnig er þjóðlagaskotin. Rödd og rafgítar mynda viðkvæman stöðugleika með spunaívafi. Unnur Malín hefur haldið fjölda tónleika hérlendis og erlendis og verið meðlimur í fjölda tónlistarhópa, helst ber að nefna Ojba Rasta, Lúðrasveit Reykjavíkur og Kammerkór Suðurlands. Í heimsfaraldrinum heilaði hún margar sálir með söng sínum á samfélagsmiðlum. Um þessar mundir er hún í tónmenntakennaranámi og sinnir kennslu og kórstjórn í Reykholtsskóla.