Vinir í bata, opinn fundur
Grensáskirkja church, Háaleitisbraut 66, 103 Reykjavík Directions
Thu 03.09.2026 19:15
Vinir í bata er starf fyrir alla sem vilja bæta líf sitt og byggja sig upp. Vinir í bata, 12 sporin andlegt ferðalag, er sporastarf þar sem þar sem ekki er gengið út frá því að fólk eigi við einhver skilgreind vandamál að stríða, fíkn eða annað slíkt, heldur er um að ræða vettvang þar sem fólk fær tækifæri til sjálfsskoðunar og almennrar uppbyggingar á lífi sínu, til að vera betur í stakk búin að takast á við verkefni lífsins.
Á vikulegum fundum er farið skipulega í gegnum sporin og unnið í litlum, lokuðum hópum út frá vinnubókinni Tólf sporin - Andlegt ferðalag. Þátttakendur lesa efnið heima, svara spurningum sem ákveðið hefur verið fyrir hvern fund og koma svo og deilda niðurstöðum sínum með hópnum.
Starfið er þátttakendum að kostnaðarlausu, en nauðsynlegt er að kaupa vinnubókina. Hún verður til sölu á kynningarfundunum en fæst líka í bókabúðum og í Kirkjuhúsinu-Skálholtsútgáfunni, á neðri hæð Bústaðakirkju.
Fyrstu þrír fundir vetrarins eru svokallaðir kynningarfundir og öllum aðgengilegir. Á fjórða fundinum sem almennt er opinn, er hópunum svo lokað og eftir það er ekki hægt að taka við nýjum aðilum inn í starf vetrarins.
Kynningarfundirnir í september eru því opnir öllum áhugasömum.
Verið hjartanlega velkomin í 12 spora starf, Vina í bata í Grensáskirkju.