Vetrarfrí grunnskólanna

Vetrarfrí grunnskólanna

Listasmiðjan í Önnustofu, Strandgata 28, 220 Hafnarfjörður Directions

Mon Oct 26 2026 09:00

Hvað ætlar þú að gera í i Vetrarfríinu?

Það verður þægileg og kósí stemming á bókasafninu í vetrarfríinu, og allir ættu að finna eitthvað við sitt hæfi. Hvernig væri að kúra í góðum stól og lesa bók, eða hlusta á tónlist? Ja, eða taka þátt íöllu sem er í gangi?

Helgina fyrir, laugardaginn 24. október er Anime-klúbbur fyrir 14-16 ára og sunnudaginn 25. október verður svo bókmenntaspjall fyrir eldri hópinn með Flumbru

26.-27. október verður fjársjóðsleit í gangi fyrir naska gesti.

Mánudaginn 26. október, þegar vetrarfrí formlega hefst, verður opni leikskólinn frá kl12:00 til 14:00, og listasmiðja frá kl 16:00-17:00

Á þriðjudag, 27. október, verður svo spilakynning á nýju og spennandi spili kl 15:30, og á verkstæðinu verður saumahittingur – og þema dagsins er að taka upp og breyta sniði fyrir sögulega kjóla.

Auðvitað verða öll okkar spil, bækur bíómyndir og blöð í boði fyrir þá sem vilja njóta frísins í rólegheitunum, - og við hlökkum til að sjá ykkur!