Skyndihjálp ungbarna | Fræðsla
Listasmiðjan í Önnustofu, Strandgata 28, 220 Hafnarfjörður Directions
Sat Jan 23 2027 13:00
Við bjóðum foreldra ungbarna hjartanlega velkomna á hagnýta foreldrafræðslu um slysaforvarnir og fyrstu hjálp ungbarna hjá okkur á Bókasafni Hafnarfjarðar.
Kennari er Hrafnhildur Helgadóttir, hjúkrunarfræðingur, kennari og faggiltur leiðbeinandi í skyndihjálp. Hrafnhildur fjallar m.a. um:
-Forvarnir,
-Endurlífgun
- Losun aðskotahlutar
- Hitakrampa
- Brunasár
- Eitrun
Fyrirlesturinn inniheldur einnig verklegar æfingar þar sem þátttakendur fá að spreyta sig.
Þátttaka er að sjálfsögðu ókeypis og hleypt inn meðan húsrúm leyfir