Skrifaáskorun í september

Skrifaáskorun í september

Live Stream - GMT, , Reykjavík Directions

Mon 07.09.2026 17:00

Hefur þig alltaf langað að skrifa en veist ekki hvar þú átt að byrja? Eða viltu komast aftur í gang og setja skrifin í forgang í haust?

Nýr hópur leggur af stað í ferðalag inn á ævintýralendur skrifanna í september. Áskorunin hefst mánudaginn 7. september, þegar fyrsta kveikjan berst í tölvupósti, en þaðan í frá berst ný kveikja á hverjum virkum degi í fjórar vikur.

Skráning er hafin og fer fram hér:

https://forms.fillout.com/t/9SDphkWyRFus

Innifalið í Skrifaáskorun í september er eftirfarandi:

✨ 20 spennandi kveikjur sem kitla ímyndunaraflið og liðka skrifavöðvana

📽 3 vikuleg fræðslumyndbönd frá leiðbeinanda

✏️ aðgangur að lokuðum hópi á Facebook fyrir þátttakendur

📽 samskrifaviðburður í Facebookhópnum mánudaginn 7. september kl. 17, þar sem öll sem vilja geta fylgst með beinni útsendingu og gert skrifaæfingar með leiðbeinanda

Áskorunin miðar að því að koma okkur af stað í skrifum og finna skrifagleðina sem getur fleytt okkur áfram inn í enn stærri ævintýri á ritvellinum – áherslan er því öll á leikgleði og tilraunir en ekki málfræði eða stafsetningu. Það eina sem þú þarft að gera er að taka frá fimmtán mínútur á dag til skrifa!

Ekki er um nein skilaverkefni eða endurgjöf að ræða heldur er markmiðið með áskoruninni að þátttakendur búi til pláss fyrir skrif og sköpun í daglegri rútínu á eigin forsendum. Kveikjurnar eiga svo þáttakendur áfram og geta endurnýtt að vild!

Leiðbeinandi er Sunna Dís Másdóttir, M.A. í ritlist, rithöfundur, skáld, þýðandi og ritlistarkennari. Sunna hefur kennt fjölmörg ritlistarnámskeið, bæði í raunheimum og netheimum, og hefur staðið fyrir rafrænum skrifaáskorunum og ritlistarnámskeiðum síðustu misseri við góðan orðstír.

Umsagnir nemenda af fyrri netnámskeiðum:

✨„Mér fannst námskeiðið alveg frábært. Það kveikti á sköpunarkraftinum í dimmasta skammdeginu.“

✨ „Virkaði á hugann eins og startvökvi á gamla díselvél.“

✨ „Mjög skemmtilegt námskeið sem losaði um margra ára ritstíflu. Fór algjörlega fram úr væntingum.“

Performers