Sjónlína // Nóam Óli Stefánsson

Sjónlína // Nóam Óli Stefánsson

Myndlistardeild Listaháskóla Íslands, Laugarnesvegur 91, 105 Reykjavík Directions

Thu Oct 22 2026 17:00

BA3 einkasýning í Naflanum

Opnun 22. október 17:00 – 19:00

Einnig opið 23. október kl. 16:00-18:00 & 24.-25. október kl. 13:00-16:00.

------

Þegar lagst er niður snýst heimurinn á hlið.

Við liggjum eins og sjóndeildarhringurinn.

Hver einasti dagur hefst í þessari stöðu og endar.

Bakgrunnurinn dregst fram á sjónarsviðið.

(Hefurðu tekið eftir því hvernig gólfið verður að persónu þegar staðið er á haus?)

Við leggjumst opinberlega niður í skiptum fyrir nýtt sjónarhorn.

(Mesta traustið felst í því að sofa við hlið einhvers.)

Við missum stjórn á því hvernig við birtumst öðrum þegar við liggjum (sofum).

Í þátttökuverkum sínum leikur Nóam Óli með gjörðir, hreyfingu og inntak frekar en efni og umgjörð. Í innsetningum hans eru áhorfendur hvattir til að prófa sig áfram, snúa sér á hlið, snerta og leita af nýjum leiðum til að sjá og skynja.

------

Sýningin er partur af einkasýningaröð BA nemenda á þriðja ári í myndlist sem fara fram á tímabilinu 17. september – 26. nóvember 2026. Einkasýningar nemenda er liður í námskeiðinu Vinnustofur prófessora í umsjón Heklu Daggar Jónsdóttur, Ólafar Nordal & Páls Hauks Björnssonar. Kennarar og leiðbeinendur eru Sabine Fischer, Una Björg Magnúsdóttir & Unnar Örn Jónasson Auðarsson.