Málþing - klassíska söngsenan og tónlistarleikhússenan
Nordic House, Sæmundargata 11, 102 Reykjavík Directions
Thu Oct 29 2026 17:00
Fagfólki í söng- og tónlistarleikhússenunni er boðið til þátttöku í málþingi í Norræna húsinu fimmtudaginn 29. október. Þar ætlum við að ræða saman og fræðast um senuna okkar hérlendis og erlendis og deila upplifunum okkar á hvar við stöndum - og hvert við erum að fara. Hvernig er senan að þróast, hvað hefur breyst á undanförnum árum? Hverjar eru áskoranirnar, hvar leitum við að innblæstri? Hvernig getum við kynnst innbyrðis og starfað betur saman? Um leið fáum við nokkrar stuttar kynningar frá erlendu og innlendu fagfólki úr senunni sem segir frá spennandi verkefnum.
Aðgangur er ókeypis og öllum opinn meðan húsrúm leyfir.