Lífið er konsert
Hof Menningarhús, Strandgata 12, 600 Akureyri Directions
Sat Oct 24 2026 16:00
Karlakór Eyjafjarðar fagnar 30 ára starfsafmæli sínu með stórtónleikum í Menningarhúsinu Hofi á Akureyri laugardaginn 24. október 2026 klukkan 16.
Þar verður sannkölluð tónlistarveisla þar sem kórinn, gestasöngvarar og sjö manna hljómsveit sameinast á sviðinu.
Karlakór Eyjafjarðar hefur í þrjá áratugi verið mikilvægur hluti af tónlistar- og menningarlífi á Akureyri og á Eyjafjarðarsvæðinu. Á þeim tíma hefur kórinn komið víða fram, sungið við fjölmörg tækifæri og eignast stóran hóp dyggra áheyrenda. Afmælistónleikarnir eru því tilefni til að líta yfir farinn veg, fagna þeim áfanga sem náðst hefur og um leið horfa fram á veginn.
Á tónleikunum verður boðið upp á fjölbreytta dagskrá þar sem léttleiki í lagavali og flutningi verður í fyrirrúmi. Á efnisskránni verða lög sem fólk þekkir í flutningi ýmissa vinsælla norðlenska hljómsveita eins og Ingimars Eydal, Gauta, Skriðjökla, Greifanna og Póló og Bjarka svo nokkrar séu nefndar. Einnig verða flutt lög eftir Eirík Bóasson, Bjarna Hafþór Helgason og Óðin Valdimarsson ásamt sígildum kórlögum t.d. úr “Vesalingunum”. Allmörg þessara laga hefur Guðlaugur Viktorsson söngstjóri útsett sérstaklega fyrir kórinn.
Með kórnum á sviðinu verða tveir öflugir gestasöngvarar, Magni Ásgeirsson og Snorri Snorrason. Þeir munu setja svip sinn á dagskrána og eiga eftir að skapa skemmtilega og eftirminnilega samveru með kórnum. Meðleik annast sjö manna hljómsveit sem Daníel Þorsteinsson fer fyrir og tryggir tónleikunum kraftmikinn og fjölbreyttan hljóðheim. Kynnir verður hinn góðkunni Óskar Pétursson og mun hann leiða gesti í gegnum dagskrána á sinn einstaka og létta hátt.
Karlakór Eyjafjarðar býður landsmönnum að taka þátt í þessari veglegu afmælishátíð og eiga með kórnum góða stund í Hofi – þrjátíu ár af söng, vináttu og gleði verða þar í sviðsljósinu.
Tónleikarnir í hnotskurn
Karlakór Eyjafjarðar – 30 ára afmælistónleikar
📍 Hof, Akureyri
📅 Laugardagur 24. október 2026
🕓 Tónleikar hefjast kl. 16:00
🎼 Stjórnandi: Guðlaugur Viktorsson
🎤 Gestasöngvarar: Magni Ásgeirsson og Snorri Snorrason
🎸 Hljómsveit: 7 manna hljómsveit undir stjórn Daníels Þorsteinssonar
🎙️ Kynnir: Óskar Pétursson
🎟️ Miðaverð: 9.900–11.900 kr.
🎫 Miðasala: Mak.is og Tix.is