Kynstrin öll | Jólabókakvöld Bókasafns Hafnarfjarðar
Listasmiðjan í Önnustofu, Strandgata 28, 220 Hafnarfjörður Directions
Fri Dec 04 2026 20:00
Kynstrin öll enn á ný! Fjórir höfundar, yndisleg kvöldstund, tónlist, veitingar og skemmtun fyrir alla sem vilja láta berast með hinu árlega jólabókaflóði!
Við skörtum að sjálfsögu yndislegum gestum, en með okkur í þetta skiptið mæta bæði nýir höfundar og gamlar kanónur, því gestir okkar eru Einar Lövdahl, Margrét S. Höskuldsdóttir, Auður Ava Ólafsdóttir og Hallgrímur Helgason, hver með nýtt og spennandi verk sem lesa má um hér fyrir neðan.
Arndís Þórarinsdóttir leiðir kvöldið af alkunnri snilld, og ljúfir jólatónar munu líða um loftið og leika fullkomnlega við rauðvínslögg og súkkulaði, enda erum við í notalega gírnum svona rétt fyrir jólin.
Kynstrin öll hafa nú þegar skipað sér sess í viðburðadagatali Bókasafns Hafnarfjarðar, oft komast færri að en vilja, svo við biðjum fólk að mæta tímanlega.
Höfundar og verk á Kynstrunum 2026:
'Tengdasonur Íslands' - Auður Ava
Í miðri heimsstyrjöldinni skolar á land vísindamanni sem hefur áhuga á náttúru og talar mörg tungumál. Zakarías er blóðafi Valgerðar, sem býr með 103 ára ömmu sinni, Valgerði eldri, en þær deila missi. Nöfnurnar horfa til fortíðar og rekja sögu sem fjallar um hver við erum, hvaðan við komum og um tímann, sem rennur aftur á bak að upptökum sínum.
'Aðskotahlutir' - Einar Lövdahl
Svefnvana móðir í Svíþjóð fær nístandi óþægindi úr fortíðinni á heilann. Ungur eldhugi dragnast með íslenska slaufun og stóra drauma í nýju landi. Eiga þau afturkvæmt til Íslands? Heillandi samtímasaga um tengsl, meðalmennsku og frama, samskipti í hjónabandi og eðli vináttu, eilífan flótta undan sársauka og eftirsjá eftir því sem aldrei varð.
'Enginn deyr í IKEA' - Hallgrímur Helgason
Á gráleitum miðvikudegi í mars fara feðgin saman í IKEA. Ferðin tekur óvæntan snúning þegar þau lokast inni í versluninni yfir nótt. Að loknum rómuðum þríleik sínum um síldarævintýrið snýr Hallgrímur Helgason aftur í nútímann í nýstárlegri sögu um hversdag okkar allra – sem verður aldrei samur.
'Eldur í öskunni leynist' - Margrét S. Höskuldsdóttir
Þriðja bók Margrétar S. Höskuldsdóttur um lögregluteymið Rögnu og Berg. Eldgosið í Heimaey er í algleymingi og þrjú systkini frá Eyjum eru send í fóstur vestur á firði. Löngu síðar snýr eitt þeirra aftur og um svipað leyti finnast mannabein á Dynjandisheiði. Margrét hlaut Blóðdropann 2025 fyrir aðra bókina í seríunni, Lokar augum blám.