Jólagrautur á Vagninum

Jólagrautur á Vagninum

Vagninn, Vagninn, Flateyri | Vagninn

Fri Nov 20 2026 20:00

Það stendur mikið til á Vagninum á Flateyri helgina 20.-21. nóvember. Vinir og velunnarar hans ætla að opna hann upp á gátt og bjóða upp á sannkallaða tónlistarveislu í aðdraganda jóla.


Hrært verður í girnilegan Jólagraut þar sem öllu ægir saman. Baggalútur, Hjálmar, Sigurður Guðmundsson & Memfismafían, Bogomil Font & Greiningardeildin og Árný Margrét mæta á svæðið og telja í ýmiskonar hátíðar- og aðventuhittara í bland við hugljúf jólalög og sígilda smelli.


Einstakt tækifæri til að koma sér í jólagírinn með góðum fyrirvara.