Jóga nidra djúpslökun

Jóga nidra djúpslökun

Lífsgæðasetur St. Jó, Suðurgata 41, 220 Hafnarfjörður Directions

Wed 02.09.2026 17:15

Finnur þú fyrir streitu, spennu eða þreytu?

Áttu erfitt með að slaka á, sofna eða gefa þér tíma til að hvíla?

Þá gæti Yoga Nidra verið það sem þú þarft.

Yoga Nidra, oft kölluð „jógískur svefn“, er djúp slökunaraðferð þar sem líkaminn fær tækifæri til að hvíla sig á meðan vitundin helst vakandi. Með leiðsögn í öruggu og nærandi rými fær taugakerfið tækifæri til að róast, spennur að mýkjast og hugurinn að kyrrast.

Á þessu námskeiði munum við:

Læra að slaka djúpt á og róa taugakerfið

Vinna með streitu og spennu á mildan hátt

Styðja við betri svefn og endurheimt

Þú þarft enga fyrri reynslu af jóga eða hugleiðslu.

Allt sem þú þarft að gera er að mæta eins og þú ert, leggjast niður og leyfa þér að taka á móti.

Yoga Nidra býður okkur að staldra við í heimi sem hvetur stöðugt til meiri hraða og afkasta. Jóganidra minnir okkur á að stundum felst dýpsta lækningin ekki í því að gera meira – heldur í því að leyfa sér að vera og sleppa tökum.

Dasetning: Alla mánudaga og miðvikudaga kl 17:15

Staðsetning:

Yogahúsið Lífsgæðaetur st.jó 4 hæð

Skráning: yogahusid@gmail.com

Gefðu þér leyfi til að hvíla.

Gefðu þér leyfi til að anda.

Gefðu þér leyfi til að koma heim til þín.