Heilakaffi í Hæðargarði

Heilakaffi í Hæðargarði

Félagsmiðstöðin í Hæðargarði 31, Hæðargarður 31, 108 Reykjavík Directions

Thu 03.09.2026 17:00

Alzheimerkaffi heitir núna Heilakaffi í takt við nafnabreytingu samtakanna sem heita núna Heilahjálp - samtök um heilabilun.

DAGSKRÁ

Thelma Jónsdóttir, fræðslustjóri Heilahjálpar, kynnir nafnabreytingu samtakanna. Af hverju var ákveðið að breyta um nafn, hvernig nýja nafnið var valið og hvaða verkefni hafa fylgt í kjölfarið.

Í lokin stjórnar Sveinn Arnar Sæmundsson samsöng og spilar undir á píanó.

TILGANGUR

Gefa fólki tækifæri til að koma saman og eiga notalega stund. Tilvalinn vettvangur til að hittast, hlýða á stutt erindi/skemmtun, spjalla og gæða sér á kaffi og góðum veitingum.

FYRIR HVERJA

Heilakaffi er ætlað fólki með heilabilun og aðstandendum þeirra.

AÐRAR UPPLÝSINGAR

Engin þörf á að skrá sig - bara að mæta.

Kaffigjald er 500 kr. en það eru Sóroptimistar sem sjá um kaffi og veitingar.

Hlökkum til að sjá ykkur sem flest.

Performers