Hausttónleikar Skólahljómsveitar Kópavogs

Hausttónleikar Skólahljómsveitar Kópavogs

Háskólabíó | Salur 1, Hagatorg, 107 Reykjavík Directions

Sun Nov 01 2026 16:00

Hausttónleikar Skólahljómsveitar Kópavogs

Skólahljómsveit Kópavogs heldur sína árlegu hausttónleika í Háskólabíói, sunnudaginn 1. nóvember. Þar koma fram um 170 hljóðfæraleikarar sem skipt er í þrjár hljómsveitir eftir aldri og getu. Munu sveitirnar leika hressilega blöndu af nýrri og gamalli tónlist og öruggt er að allir munu skemmta sér vel, bæði hljóðfæraleikarar og áheyrendur. Stjórnandi sveitanna er Össur Geirsson. 

Á þessu starfsári verður Skólahljómsveit Kópavogs 60 ára og af því tilefni verður mikið um að vera í vetur. Afmælistónleikar verða í Eldborgarsal Hörpu og verður öllu til tjaldað þar. Afmælisveislur geta verið dýrar og bjóðum við aðdáendum því upp á að greiða örlítið hærra verð fyrir miðann í Háskólabíói eða halda sig við venjulegt miðaverð. Hægt er að velja á milli þessa að greiða kr. 2.000.- eða bæta litlum 1.000.- við. Athugið að öll börn yngri en 15 ára fá ókeypis miða. Einnig er fyrir þá sem ekki komast á tónleikana hægt að styrkja sveitina í afmælisgleðinni með því að velja það sem hér fyrir neðan heitir styrkur án sætis á tónleikum.