Frí öndun & tónheilun
Mama Reykjavík, Bankastræti 2, 101 Reykjavík Directions
Tue 01.09.2026 13:00
🌻🪷🌻
Því dýpra sem við öndum,
því dýpra og innihaldsríkara verður líf okkar
Frí öndun & tónheilun
Ég heiti Maggý og er jógakennari í samstarfi með mama Reykjavík bjóðum við upp á fría öndun & tónheilun alla þriðjudaga kl. 13–14
Er það gjöf til þín fá okkur 💚🌻🪷
Öndunin er eitt af okkar mikilvægustu verkfærum. Þegar við dýpkum andardráttinn róast hugurinn, líkaminn slakar á og við tengjumst okkur sjálfum á dýpri hátt.
Í tímanum leiði ég hópinn í gegnum mjúka en kraftmikla meðvitaða öndun sem hjálpar okkur að losa um spennu og stíflur í líkamanum og opna fyrir dýpri tengingu við sjálfið og hjartað.
Við notum einnig trommur og tónlist sem er sérstaklega valin fyrir hvern tíma til að styðja við ferðalagið inn á við.
Í lok tímans förum við í djúpa slökun með kristalskálum. Kristalskálar eru hljóðfæri úr hreinum kristal sem gefa frá sér hreina og djúpa tíðni sem getur róað taugakerfið og skapað djúpa slökun og jafnvægi.
Í rýminu eru dýnur, púðar og teppi, svo vel fari um alla. Þú getur setið, legið eða verið á þann hátt sem líkaminn þinn kallar á.
Eftir tímann er svo notalegt að staldra aðeins við, draga spil og njóta samveru áður en haldið er aftur út í daginn.
✨ Sértilboð fyrir þátttakendur:
20% afsláttur á veitingastaðnu Mama
Hægt að nýta fyrir eða eftir tímann.
Ég mæli sérstaklega með hugleiðlsu cacoa fyrir tímann næring beint í hjartað ❤️💚❤️
Vertu hjartanlega velkomin það þarf ekki að hafa reynslu, ég tek vel á móti þér 🧡
Kærleikkv
Maggý
📍 Mamma Reykjavík
Bankastræti 2
🕐 Alla þriðjudaga kl. 13–14
Performers
-
Leon S Kemphttps://www.facebook.com/nordicvoyagerecordings
ᚾᚩᚱᛞᛁᚳ×ᚠᚩᛁᚪᚷᛖ×ᚱᛖᚳᚩᚱᛞᛁᛝ