Foreldranámskeið fyrir foreldra barna á aldrinum 3-9 ára

Foreldranámskeið fyrir foreldra barna á aldrinum 3-9 ára

Garðatorgi 7, 210 Garðabær, Iceland, Garðatorg 9, 210 Garðabær Directions

Tue Oct 27 2026 19:45

Fræðslu- og frístundasvið og Velferðarsvið Garðabæjar bjóða upp á foreldranámskeið fyrir þau sem vilja auka færni sína til að takast á við uppeldishlutverkið.

Á námskeiðinu munu reynslumiklir uppeldisráðgjafar gefa foreldrum barna á aldrinum 3-9 ára gagnleg ráð með áherslu á virk samskipti, leiðir til að ýta undir æskilega hegðun barnanna, efla færni og auka samstarfvilja þeirra.

💚 Boðið verður upp á notalega kvöldstund þar sem foreldrum gefst tækifæri til þess að auka færni sína og læra uppbyggilegar uppeldisaðferðir.

Námskeiðið er haldið þriðjudaginn 27. október frá 19:45-22:00 í Sveinatungu á Garðatorgi.

Þátttökugjald er 2500 kr. fyrir fjölskyldu, greiðsluseðill verður sendur út við skráningu.

Frekari upplýsingar má nálgast hjá Garðabæ í síma 525-8500.

Performers