Telpurnar

Telpurnar

Bíó Paradís Salur 3, Hverfisgata 52, 101 Reykjavík Directions

Fri 14.08.2026 19:45

Telpurnar er glæný stuttmynd eftir Hönnu Álfheiði Gunnarsdóttur og Guðríði Jóhannsdóttur.

Þrjár vinkonur hittast eina kvöldstund. Á yfirborðinu virðist allt vera í himnalagi en allar hafa þær þó sinn djöful að draga og þegar líður á kvöldið koma þeir sífellt betur í ljós.

Markmið stuttmyndarinnar er að skapa fyndna en einnig gagnrýna sýn á samskipti í vinkonuhópum, væntingar og valdahlutverk innan þeirra. Verkið brýtur niður mörkin milli skáldskapar og raunveruleika og verður útkoman skondin og ófyrirsjáanleg.



Performers