Bókakonfekt - höfundakvöld
Bókasafn Reykjanesbæjar, Hjallavegur 2, 260 Ytri-Njarðvík Directions
Wed Nov 25 2026 20:00
Hvað eiga Bergur Ebbi, Ása Marin og Hallgrímur Helgason sameiginlegt? Jú, þau verða á stórskemmtilegu höfundakvöldi hjá okkur!
Þau lesa upp úr nýjustu bókum sínum og spjalla við gesti um verkin, söguna á bak við þau og allt þar á milli. Og gott betur: við hefjum kvöldið á ljúfum tónum í boði Tónlistarskóla Reykjanesbæjar.
Bergur Ebbi mætir með bók sína Öld ímyndunaraflsins. Um leið og hann reifar djúptæk áhrif tæknibyltinga síðustu áratuga á samfélagið og deilir persónulegri reynslu leitast hann við að skýra hvers vegna gervigreind er annað og meira en tækninýjung. Óður til skapandi hugsunar, töfra tungumálsins og alls þess sem gefur lífinu gildi.
Öruggt skjól á Eskifirði er hlýleg, rómantísk og bráðskemmtileg aðventusaga eftir hafnfirsku ljúflestrardrottninguna Ásu Marin, sem á eftir að hitta hina fjölmörgu aðdáendur Hittu mig í Hellisgerði og Stjörnurnar yfir Eyjafirði beint í hjartastað.
Enginn deyr í IKEA er nýjasta afurð Hallgríms Helgasonar, sem snýr aftur í nútímann í nýstárlegri sögu um hversdag okkar allra, sem verður aldrei samur. Á gráleitum miðvikudegi í mars fara feðgin saman í IKEA. Ferðin tekur óvæntan snúning þegar þau lokast inni í versluninni yfir nótt.
Kvöld fyrir bókaorma, forvitna og alla þá sem vilja eiga notalega kvöldstund í góðum félagsskap rétt fyrir jólabókaflóðið.
Aðgangur ókeypis og öll velkomin!
Taktu kvöldið frá, merktu við „going“ og taktu vini með!
Viðburðurinn er styrktur af Uppbyggingasjóði Suðurnesja