Alþjóðlegur minningardagur um fórnarlömb umferðarslysa

Alþjóðlegur minningardagur um fórnarlömb umferðarslysa

Þyrlupallurinn við Landspítalann Fossvogi, , 108 Reykjavík Directions

Sun Nov 15 2026 13:45

Sunnudaginn 15. nóvember er minningardagur um fórnarlömb umferðarslysa. Haldin verður athöfn sem hefst kl. 14:00 við þyrlupallinn við Landspítalann í Fossvogi.

Þennan dag munu einingar Slysavarnafélagsins Landsbjargar og fleiri viðbragðsaðilar standa fyrir táknrænum athöfnum víða um land. Upplýsingar þar um verða færðar inn á vefsíðuna www.minningardagur.is

Öll eru velkomin.

Dagskrá:

13:45 – Þyrla Landhelgisgæslunnar lendir – viðbragðsaðilar koma sér fyrir.

14:00 – Setning – Ingilín Kristmannsdóttir, ráðuneytisstjóri innviðaráðuneytisins.

14:05 – Halla Tómasdóttir forseti Íslands flytur ávarp.

14:10 – Forseti Íslands stýrir einnar mínútu þögn.

14:11 – Eyjólfur Ármannsson innviðaráðherra flytur ávarp.

14:16 – Ræðumaður dagsins fjallar um reynslu sína.

14:23 – Kór Menntaskólans við Hamrahlíð flytur lag dagsins, I Think of Angels eftir KK.

14:28 – Formlegri athöfn slitið – Ingilín Kristmannsdóttir ráðuneytisstjóri innviðaráðuneytisins. Boðið upp á kaffi, kakó og með því.