Létt og leikandi með alvöru í bland

Létt og leikandi með alvöru í bland

Hannesarholt, Grundarstigur 10, 101 Reykjavík Directions

Sat 29.08.2026 16:00

Konur og rómantík

Létt og leikandi með alvöru í bland

Guðný Guðmundsdóttir fiðluleikari og Delana Thomsen píanóleikari munu flytja

dagskrá af léttara taginu, með undurfögrum smáverkum að stórum hluta eftir konur.

Önnur verk eru einnig tileinkuð konum á einn eða annan hátt. Á efnissskrá verða

m.a, verk eftir Amy Beach, Lili Boulanger, Florence Price, Clöru Schumann, Fritz

Kreisler, Mozart, Bach, Beethoven og Atla Heimi. Einnig íslensk sönglög eftir

Hjálmar H. Ragnarsson, Þórarin Guðmundsson, Jórunni Viðar og Alexöndru

Chernyshova.

Delana Thomsen er himinlifandi yfir að snúa aftur til Íslands til tónleikahalds með

samstarfskonu sinni og vinkonu, Guðnýju Guðmundsdóttur. Hún hefur um árabil

verið kennari við undirbúningsdeild Manhattan School of Music auk viðamikilla

kennslustarfa við aðra skóla í New York. Hún hefur starfað sem meðleikari við

Juilliard skólann, Aspen tónlistarhátíðina og Meadowmount sumarskólann. Hún

starfar á sumrin við InterHarmony alþjóðlegu tónlistarhátíðina á Ítalíu.

Meðal virtra kennara Delönu hafa verið Ruth Slenczynska og Arthur

Balsam, Dalmo Carra og Elizabeth Moschetti Tobias .

Guðný Guðmundsdóttir fiðluleikari var 1. konsertmeistari Sinfóníuhljómsveitar Ísland

í áratugi. Jafnframt því starfaði hún sem kennari við Tónlistarskólann í Reykjavík,

sem síðar varð Menntaskóli í Tónlist og við Listaháskóla Íslands þar sem hún var

útnefnd heiðursprófessor árið 2018.

Á ferli sínum hefur Guðný komið fram sem einleikari víða um lönd og einnig verið

gestakennari við virta tónlistarháskóla erlendis.

Hennar helstu kennarar voru Björn Ólafsson, Carroll Glenn og Dorothy DeLay.

Þær Delana og Guðný hafa leikið saman frá níunda áratug síðustu aldar ýmist í

Bandaríkjunum eða hérlendis Þær hafa m.a. komið fram á tónlistarhátíðum í

Vermont, í Lincoln Center í New York, í Kammermúsíkklúbbnum og á

Mozartmaraþon tónleikaröðinni í Hannesarholti fyrir nokkrum árum.