Bjössi Thor í Stykkishólmi
Old Church, Aðalgata 3, 340 Stykkishólmur Directions
Thu 16.07.2026 21:00
Bjössi Thor í Stykkishólmi
Björn Thoroddsen gítarleikari hefur verið einn af atkvæðamestu tónlistarmönnum Íslands s.l ár og hefur hlotið ýmsar viðurkenningar á ferli sínum. Bjössi Thor, en það er hann yfirleitt kallaður, hefur verið að hasla sér völl í hinum stóra gítarheimi á síðustu árum og leikið með mörgum af þekktustu gítarleikum heims. Í þetta skipti kemur Bjössi fram aleinn og óstuddur og fer yfir gítarsöguna og spilar og jafnvel syngur, nokkur af sínum uppáhalds lögum, sem hann lærði þegar hann var strákur. Hotel California, Stairway to heaven og fullt af bítlalögum verða á dagskrá. Það verða líka sagðar sögur sem vart þola dagsins ljós og verður ekkert dregið undan. Engin verður svikinn af tónleikum með Bjössa.
Performers
-
Björn ThoroddsenGuitarist known for his original music and Icelandic folk songs.