Hinn ísfirski Simson

Hinn ísfirski Simson

Isafjordur, Iceland, , 400 Ísafjarðarbær Directions

Fri 14.08.2026 20:00

Verið hjartanlega velkomin á aðra uppfærslu Ísleikhúsins og nú um þúsundþjalasmiðinn Martinus Simson.

Martinus Simson var danskur trúður sem fluttist til Ísafjarðar eftir að hafa ferðast um landið í tvö ár með lítinn sirkus. Hann settist að ásamt konu sinni, Gerdu Louise Simson, og börnum í Pólgötunni er hann tók við rekstri á ljósmyndastofu sem var þar til húsa. Ljósmyndun var aðeins einn þáttur af því sem hann fékkst við, en hann smíðaði útvörp, gerði myndastyttur og frægustu þeirra eru sundkonan og sundkarlinn sem standa fyrir utan sundhöllina, auk þess að vera forsprakki skógræktar á Ísafirði.

Leikstjóri: Rakel Ýr Stefánsdóttir

Leikarar: Ásrós Helga Guðmundsdóttir, Dagbjört Ósk Jóhannsdóttir, Ísold Hekla Daníelsdóttir Apeland

Höfundar: Ásrós Helga Guðmundsdóttir og Dagbjört Ósk Jóhannsdóttir

Hönnun: Ísold Hekla Daníelsdóttir Apeland

Verkefnið er unnið í samstarfi við Skógræktarfélag Ísafjarðar í tilefni af 100 ára afmæli Simsongarðsins. Sýnt verður í Simsongarðinum og eru áhorfendur hvattir til þess að koma klæddir eftir veðri og taka með sér stóla. Gengið er inn vinstra megin í garðinum og verður sjoppa á staðnum.

Verkefnið er styrkt af menningarmálanefnd Ísafjarðarbæjar og Uppbyggingarsjóði Vestfjarða.

Miðasala er á https://xn--svi-5ma.is/vidburdur.html?id=21

og á staðnum.

Almennt: 4.000 kr

14 ára og yngri: 1.000 kr

Performers