100 ára afmæli St. Jó

100 ára afmæli St. Jó

Lífsgæðasetur St. Jó, Suðurgata 41, 220 Hafnarfjörður Directions

Sat 05.09.2026 13:00

Komdu og upplifðu sögu St. Jósefsspítala í tilefni 100 ára afmælisins. Opið hús frá kl. 13-15.

Boðið verður upp á sögugöngu um húsið þar sem saga St. Jósefsspítala, starfsemi hans og fólkið sem þar starfaði verður rifjuð upp. Á göngum hússins verða ljósmyndir og frásagnir úr sögu spítalans, auk myndasýninga á 2. og 3. hæð sem varpa ljósi á merka sögu St. Jó.

Við þetta sérstaka tilefni verður einnig afhjúpaður nafnalisti þeirra systra sem störfuðu á St. Jósefsspítala. Listinn var unninn að frumkvæði Hollvinafélags St. Jósefsspítala og er gjöf félagsins til varðveislu á sögu og arfleifð systranna sem lögðu grunn að starfseminni.

Við bjóðum alla velkomna til að kynnast sögu hússins, rifja upp minningar og fagna 100 ára afmæli St. Jósefsspítala.

Performers

  • Hafnarfjarðarbær
    Hafnarfjarðarbær
    Hafnarfjörður er þriðji stærsti bær landsins, framsækið sveitarfélag sem byggir á fjölsky