MaidenIced - Somewhere in Time í Iðnó

MaidenIced - Somewhere in Time í Iðnó

Iðnó, Vonarstræti 3, 101 Reykjavík Directions

Fri 23.10.2026 21:00

MaidenIced - Somewhere in Time í Iðnó

Hljómsveitin Iron Maiden gaf út hvert stórvirkið á fætur öðru á níunda áratug síðustu aldar, og fyrir 40 árum síðan gaf hún út plötuna Somewhere in Time, sem þykir uppáhald margra Maiden aðdáenda. Íslenska heiðurssveitin MaidenIced hefur helgað sér það verkefni að flytja tónlist meistaranna á sviði, og verður Somewhere in Time því flutt í heild sinni á tónleikum í Iðnó í bland við vel valin lög af ferli Járnfrúarinnar.

Þetta er viðburður sem enginn aðdáandi Iron Maiden ætti að láta framhjá sér fara!


“Scream for me Iceland!”

Meðlimir:
Kristján B. Heiðarsson - trommur
Magnús Halldór Pálsson - bassi
Ragnar Ólafsson - söngur
Reynir Baldursson - gítar
Sigurður Waage - gítar


Performers